Ingvi og Ragga

Thursday, August 03, 2006

Wednesday, August 02, 2006

.....

Bara að athuga hvort ég muni ennþá hvernig á að gera þetta... greinilega man ég það. Kannski fara að koma inn fleiri færslur hér á næstunni, og kannski ekki. Kemur í ljós.....

Thursday, November 03, 2005

Erfinginn

Ef að fólk er ekki búið að átta sig á því ennþá þá erum við nánast búin að gefa þetta blogg upp á báta. Það má eiginlega segja að bloggið sé farið út um allar þúfur og víða velli.
Við munum einbeita okkur að því að skrifa um erfingjann og það blogg má finna hér.
Svo geng ég undir dulnefninu rafninn og blogga hér um allan fjandannn sem mér dettur í hug.

Kveðja rafninn

Wednesday, October 12, 2005

Fullt af myndum

Það eru komnar myndir hér. Svo er ég búinn að setja upp vefdagbókarkerfi á rafninn.net þar sem ég mun setja inn hugsanir mínar og vangaveltur um tillið og lífveruna.
Kveðja Jóli

Thursday, October 06, 2005

Bumban


Hér kemur loksins bumbumyndin sem allir hafa beðið eftir. Ragga er komin 36 vikur. Húff bara mánuður eftir.
Fljótlega koma inn fleiri myndir af öllu mögulegu sem við höfum verið að gera síðustu vikur og mánuði.

Monday, June 27, 2005

Allt að gerast

Halló allir,

Nú er margt um að vera í okkar hversdagslífi. Ég(Ingvi auðvitað) er búinn að vera að pakka á fullu í dag og síðustu daga á meðan Ragga er að læra fyrir lokaprófið og pakkar líka inn á milli. Við flytjum út annað kvöld og Jón Auðunn vinur okkar kemur með bíl og hjálpar okkur að flytja allt draslið niður á Istedgade. Ég fór ásamt félögunum uppí Roskilde til að tjalda og svo mætum við aftur hressir á miðvikudaginn. Mikið rétt, ég er að fara á Hróarskeldu. Það verður rosalegt fjör á meðan Ragga kýs frekar að spóka sig í sólinni í rólegheitum enda loksins komin í langþráð frí.


Annars hefur ýmislegt gerst síðustu daga og vikur og hér verður stiklað á stóru hvað það hefur verið. Mamma og pabbi komu í heimsókn til okkar um miðjan maí og voru í nokkra daga. Það var mjög fínt og fengu þau gott veður og gátu skoðað ýmislegt.


Þar sem pabbi var slæmur í löppinni, gátum við ekki labbað mikið en hann hertók
hjólið hennar Röggu og hjólaði um allt hverfið hérna og skoðaði allt.


Ekki skrýtið að hann var slæmur í löppinni, það kom í ljós að hann var með æxli sem er nú búið að fjarlægja og hann spreytir sig á hækjum núna og er að ná sér.








Við röltum þetta týpíska, fórum í Tívolí, á Strikið, Nýhöfn, Fields og fleira.



Hér er ánamaðkur sem ég sá einn daginn þegar ég var í skólanum og var að rölta að fá mér að borða. Takið eftir að það er lítil padda þarna sem er að éta ánamaðkinn. Ég bjargaði ánamaðkinum frá pöddunni. Ég tók það allt uppá vídjó ef einhver vill sjá nákvæmlega hvernig þetta gerðist allt saman, þetta var alveg rosalegt.


við félagarnir úr DTU fórum saman út að borða þegar við klárurðum önnina. Þetta fólk var að skoða matseðilinn fyrir utan staðinn þar sem við borðuðum. Ágætis fólk alveg.


Seinna um kvöldið fórum við á tónleika í tívolíinu með hljómsveitinni Saybia. Þeir voru nokkuð góðir og alveg miklu betri en ég bjóst við. Ekkert skrýtið þar sem ég bjóst við að Saybia væri kona sem syngi danskt píkupopp. Svona þessi danska Britney Spears. Saybia er í raun nokkrir gaurar sem spila tónlist ekki ósvipaða Muse, Coldplay, Travis og Radiohead blandað saman.


Þegar hér er komið við sögu eru Eyjó og Lilja mætt til Köben ásamt skvísunum Bergdísi og Magdalenu. Þetta er tekið á 17.júní, sem var 18.júní að þessu sinni. Takið eftir hvað Eyjó er með flott bak.


Þar sem sumarið er svo sannarlega komið hér í Danmörku þá urðum við auðvitað að skella okkur á ströndina. Helgi liggur þarna í lendaskýlunni, vel smurður af olíu. Jón Auðunn er þarna með rauðu handleggina.


Eygló og Reynir kíktu við á leið heim úr kórferðalagi í Noregi. Við fórum út að borða alveg ágætismat. Reyndar var pizzan mín örlítið þurr og sömuleiðis sverðfisurinn hennar Eyglóar.









Hér eru skvísurnar á leiðinni heim eftir matinn.


En við kallarnir fengum að kíkja aðeins á pöbbinn. Við fórum á Mojo sem er blúsbar þar sem er alltaf spiluð lifandi tónlist. Að þessu sinni vora það The Healers sem slógu í gegn.


Við fórum út að borða á afmælinu hennar Röggu, 25.júní, kíktum svo í Tívólí og Ragga fékk allt sem hún vildi. Reyndar þá þurfti hún að borga fyrir allt en það er önnur saga.


Mættir á Roskilde, Bjarki hermaður og Jón Auðunn að spekúlera í tjaldinu. Djö.. verður gaman og veðurspáin er sól sól og sól og smá rigning








Hér kemur svo bumbumyndin sem allir hafa beðið eftir og suðað um að fá. Þarna er Ragga komin 22 vikur + 3 dagar. Það eru 22*5 + 3 = 113 dagar ef maður telur bara virka daga annars eru það 157 dagar.












Þó að það hafi enginn beðið um þessa bumbumynd þá læt ég hana flakka með og verð að segja að ég er frekar móðgaður að enginn hafi beðið um hana.


Þetta er komið gott í bili. Næsta blogg verður þegar við komum aftur til Köben því ég verð tölvulaus í allt sumar. Hvernig fer ég að því að vera tölvulaus, ekki spyrja. Bless í bili. Þið eruð frábær.

Kveðja, Ingvi, Ragga og bumban

Wednesday, May 18, 2005

Hvað er á seyði..

Já við erum löt í þessu bloggi.
Ég er kominn með lén sem er rafninn.net og set stundum myndir á gallery.rafninn.net

Við vorum að fá ný símanúmer sem eru:
Ingvi: 61799424
Ragga: 61795424

Hilsen

Wednesday, March 09, 2005

Back on popular demand ...

Halló halló. Ég byrja alltaf öll web-log á því að afsaka hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast. Ég ætla ekki að gera það núna. Mér er alveg sama, ég skrifa bara þegar ég nenni og hananú. Það er þá bara þeim mun skemmtilegra þegar ég loksins kem mér til þess að skrifa eitthvað. Það er margt búið að gerast í okkar lífi. Allt saman voða skemmtilegt, ég er svo jákvæður að ég sé bara gott í öllu. Hér kemur þá myndasyrpa af öllu saman. Það er margt annað sem hefur gerst hjá okkur en ef ég hef ekki tekið mynd af því þá man ég ekki eftir því.


Þetta eru verksummerki eftir innbrotið. Tókum myndir af öllu fyrir lögguna og snertum ekki neitt til að hægt væri að taka fingraför. Svo kom danska C.S.I á vettvang. Þeir eru ekki alveg jafn góðir og bandarísku C.S.I. Gaurinn var með svaka tösku, setti hana á gólfið, tók upp málband og mældi. "32 centimetrar". Svo lokaði hann töskunni og gerði ekkert annað. Ekki skrýtið að við höfum ekki séð tölvuna aftur. Ég nota bara gamla vasareikninn minn núna, hann stendur alltaf fyrir sínu.


Nei, það er ekki bara svona mikið drasl hjá okkur! Þjófarnir tóku líka allt leirtau úr skápunum hjá okkur, óhreinkuðu það og skildu það eftir í vaskinum. Tók reyndar ekki mynd af því.


Daginnn eftir innbrotið kom Oddur í heimsókn til að létta okkur lífið.


Fórum á vaxmyndasafnið.


Og saman á klósett. Það kostar inná svona klósett þannig að við fórum öll saman til að spara. Alltaf svo hagsýn.


Hér erum við á Bang & Jensen


sem er gamalt apótek. Alveg satt.


Við tímdum ekki að fara út að borða á hverju kvöldi þannig að við elduðum heima. Ragga eldaði kjúklingaréttinn sinn sem hún er orðin fræg fyrir hérna úti (allavega hjá mér).


Hann var svo góður að Ragga eldaði hann aftur næsta kvöld. Það er ekki slæmt, nákvæmlega sama í matinn tvo daga í röð. Þið sjáið Röggu þarna hægra megin. Hún er að reyna að fela sig en maður sér hana alveg. Hint: hún er þessi í svörtu peysunni.


Eftir megastuð og fjör þessa helgi vildum við vera menningarleg á sunnudeginum og sjá pínulitlu hafmeyjuna. Við vorum alltaf að segja við Odd hvað hún væri lítil svo hann yrði ekki fyrir vonbrigðum að hann varð fyrir vonbrigðum með hvað hún var stór. Hér sést Oddur og hafmeyjan í bakgrunn. Hún er þarna, það var bara komið myrkur og ógeðslegt skítaveður.


Á mánudagkvöldinu fórum við út að borða á Jensens, all you can eat spare ribs. Við fengum okkur öll tvisvar á diskinn bara af því við gátum það. Ég eyddi mestum tíma í seinni diskinn við að skera allt í sundur þannig að það liti út fyrir að ég væri búinn að borða eitthvað.


Svo er haldið út á flugvöll á þriðjudagsmorgni. Ragga vaknaði þegar við komum út á völl enda þreytt eftir góða og langa helgi.


Við erum orðin svo góðhjörtuð að þegar við verslum brauð þá gefum við þeim endana. Þetta lætur manni líða vel í hjartanu, sérstaklega þegar það er kalt úti. Ég mæli með þessu fyrir hvern sem er.


Þetta hús er nálægt þar sem við búum. það nær endalaust langt upp.


Þetta er ólífuskammturinn minn. Ég setti þennan bjór við hliðina til að fólk geri sér grein fyrir stærðinni. Ég klára einn svona dúnk á viku og besta er að þetta kostar bara 18 krónur í Bilka. Hvem'ka, Bilka. Ég er reyndar að fá ógeð á ólífum núna.


Þetta rakst ég á í einhverjum sölubás í Stínu (Christaniu) minnir mig. Þetta er tónlistarafbrigði skylt reggí sem kallast ragga.


Rós kom í heimsókn einhvern föstudag og nokkrir bjórar sötraðir af því tilefni. mikið var slúðrað það kvöld. Ojj


Svo fórum við á Þorrablót íslendinga í Köben. Fórum bara á ballið samt. Hér erum við að fara út úr húsi. Takið eftir tannburstunarslettunum á speglinum. (Ég held ég hafi fundið upp nýtt orð)


Á móti sól voru að spila og svaka fjör. Ómar Berg átti svæðið enda rótarinn hjá hljómsveitinni. Hér er hann að halda æstum aðdáendum í burtu.


Svo fórum við á kynningarkvöld á kolleginu fyrir nýinnflutta. (annað nýtt orð) Kvöldið byrjaði á að vera leiðinlegasta og neyðarlegasta kvöld sem ég hef upplifað en það lagaðist með kvöldinu og á endanum talaði ég reiprennandi dönsku, sænsku og swahili. Þetta er nýi sænski vinur minn sem ég man ekki hvað heitir. Olsen Olsen eða eitthvað þannig.


Og nýja besta vinkona Röggu, heitir Ramor og er kærasta gaursins. Annað höfum við ekki talað við þau síðan þarna, en ágætis krakkar samt.

Ingvi hefur talað.
Kveðja frá okkur báðum.

Friday, January 21, 2005

Ekki mjög skemmtilegar Fréttir

Jæja þá er maður nú aldeilis búin að upplifa stóborgarfílinginn í ræmur. Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir í rosa kósí íbúð. Sko við erum búin að vera heima öll kvöld síðan við komum hingað bara að horfa á sjónvarpið og sonna, svo í gær þá ákváðim við að kíkja aðeins út á kaffihús, vorum ca tvo tíma úti. Svo þegar við komum heim þá var bara allt á rúi og stúi og fartalvan, allar leiðslur og taskan undir hana horfin og tveir hringir. Haldiði ekki bara að við höfum verið rænd. Shitt hvað þetta var mikið sjokk maður. Þó að þetta sé nátturlega þvílikt fjárhagslegt tjón, þá er samt einhvernvegin ennþá verra að það eru einhverjir gaurar búnir að vera hérna inni og gramsa í öllu sem maður á. Það gerir mann eitthvað svo reiðan. Við hringdum nátturlega strax í lögguna en hún kom ekki fyrr en í morgun, svona csi lið með rosa töskur og spurningar, svo núna er verið að vinna í málinu og rannsaka. Samt engar líkur á að fá þetta dót til baka. Líka hálf fáranlegt hvað það líður langur tími þar til löggan kemur, ætli talvan sé ekki komin til þýskalands eða eitthvað. Svo var ég (Ragga)geðveikt nojuð að fara að sofa, gat í fyrsta lagi ekkert sofnað svo ef heyrðist eitthvað smá brak þá hrökk ég alveg í kút. En allavega þá getur maður þakkað fyrir að þetta var ekkert verra, við erum allavega heil á húfi bæði og það er nú fyrir öllu, ekki satt.
Núna er Oddur Óskar hjá okkur og við erum bara komin í gúddí fíling aftur, þýðir ekkert að væla þetta, life goes on. Og bara ætlum að skemmta okkur sem best um helgina. Hafið það gott og heyrumst síðar.
Hjödda hugsasði nú soldið til þín, vantaði að þekkja einhvarn í löggunni svo það yrði ger eitthvað í máinu strax.
En allavega bæ bæ og heyrumst. kveðja Ragga og Ingvi.

Friday, January 14, 2005

Tilbaka í Köben

Þá er kominn tími til að láta aðeins vita af sér. Hér að neðan eru nokkrar myndir sem lýsa því hvað hefur á daga okkar drifið síðustu vikur. Þess ber að geta að hér má aðeins sjá dropa í hafið af þeim ótalmörgu svaka skemmtilegu atburðum sem gerðust nálægt okkur.
Við lentum í orgíu þegar við fórum í sakleysi okkar að fá okkur skötu á messu heilags Þorláks.


Afleiðingarnar af því voru svakalegar.


Eins og sést.


Enda orgían ekki uppá marga fiska.


Hér eru Skapti og Skafti í góðu flippi á Boston CelticCross. Það sést ekki en þeir eru báðir blindfullir. Nei grín bara.


Afmæli hjá Magdalenu skvísu sem var tveggja ára.


Hér er Reynir töffari með frænkugellu sinni.


Við kíktum í göngutúr á fróni en mér leist ekkert á þennan skítakulda þarna.


Þegar við komum til Köben tók þetta á móti okkur. Tóm íbúð og hellingur af ruslpósti.


Þannig að við drifum okkur beint í lestina til að skoða húsgögn.


Hittum þennan stork. Hann var barnlaus.

Við fórum í IKEA til að skoða húsgögn. Bara skoða sko. En það var ekki hægt. Við enduðum á að kaupa svefnsófa, kommóðu, lítið borð og tölvuskáp.


Allt draslið utan af þessu fyllti íbúðina.


Þetta er fræga borðið og stólarnir sem við keyptum fyrir jól og löbbuðum hálfan dag til að koma þessu heim. Alveg þess virði, kostaði bara 500 kall allt saman. Og útdraganlegt borð í þokkabót.


Svo er bara að setja saman tæknilegóið. Þvílíkt gaman.


Eftir að hafa snúið nokkrum spýtum vitlaust og neglt nagla með skiptilykli og fleira skrautlegt, komst tölvuuskápurinn upp.


Kommóðan var létt og þung. Það er létt að setja saman en fáránlega þung að bera.


Þetta er svefnsófi með geymsluplássi líka. Kemur sér vel í plássleysinu. Græddum rúmmeter. Rúm meter hahaha.


Við tímdum ekki að kaupa meira þó okkur vanti hillur og fleira. Þá settist ragga niður með kassana og stóra límbandsrúllu og byrjaði að föndra. Þetta er fyrir myndasafnið okkar og dundaði hún í að líma pappír utan á allt.


Ég gerði náttborðið. Er að spá í að sækja um einkaleyfi á þessu. Þetta er svo sniðugt.


Þetta er samt besta uppfinningin. Ragga gerði þetta sófaborð. Lítur vel út..


Og þegar betur er skoðað sést hvernig er í pottinn búið. Það er verst að það er bannað að hella niður, heyrirðu það Ingvi.

Þetta var dropinn í hafið. Ég vona að þið getið lesið þetta fyrir öllum frösunum.
Kveðja Inga og Raggi