Ingvi og Ragga

Wednesday, August 18, 2004

Anonymous comment

Ég stillti þannig að hver sem er getur núna commentað, þarf bara að velja, anonymous comment. Endilega þá skrifa nafnið sitt samt undir. Bæ í bili.

12 Comments:

  • Já það er mjög sniðugt, þú ert svo sniðugur strákur.

    -Ingvi

    By Anonymous Anonymous, at 3:44 PM  

  • Hahaha, þið eruð fyndin:-) Til hamingju með afmælið um daginn Ingvi.

    By Blogger mannfredo, at 4:58 PM  

  • Já til lukku með afmælið um daginn (14. ágúst) Ingvi. Og gangi ykkur vel í kongsins Köpen, þangað til ég kem og heimsæki ykkur.

    Kv, Ámonyousdi

    By Anonymous Anonymous, at 1:51 PM  

  • Þið eruð hálfvitar!!!
    Fáum við gistingu hjá ykkur jafnvel kannski?

    kveðja eða hittó
    Eyjó

    By Anonymous Anonymous, at 9:00 PM  

  • Rosalega eruð þið sjoppuleg, sæt og sjúskuð saman þarna í Köben.

    kveðja
    Pabbi

    By Anonymous Anonymous, at 6:17 PM  

  • Er ekkert búin að vera neitt smá geðstyrð yfir þessari gestabók, tók tímana tvenna að klóra mig fram úr þessu án þess að hafa PASSWORD og allt það. Allt gekk að óskum í gær, sýningarnar runnu vel og voru nokkrir leikstjórar mættir til að sjá okkur þ.á.m Stefán Baldurs, alltaf gaman ef þeir gefa hlutunum gaum sem maður er að druslast við að gera. Svo var fyrsti tökudagurinn minn fyrir myndina á föstudaginn og gekk það líka rosalega vel, var meira að segja kölluð "one shot beuty" þar sem aðeins þurfti að taka close up senu upp einu sinni (maður er svo gasalega pró hí hí). Menningarnótt var hreint út sagt æðisleg, það voru yfir 100.000 manns í bænum og veðrið var með eindæmum fallegt. Jæja, nú er ég aldeilis búin að láta dæluna ganga. Kossar og knús, Stóra sys. Bið að heilsa Camillu.

    By Anonymous Anonymous, at 6:52 PM  

  • Hæ unga ævintýrafólk. Ætlaði bara að láta líta út fyrir að ég fylgist vel með ykkur (sem ég og geri auðvita). Sakna að hafa ykkur ekki í kjallaraholunni hérna rétt hjá mér en svona er það nú bara. Við Stína erum að skoða ferðir til New York í okt, vonandi verður af því. Bill karlinn Clinton og hans frú eru búin að vera ganga hér um stræti og torg íslendingum til mikillar gleði og hópast þeir að þeim í fögnuði ;) jæja við heyrumst(ungur maður farinn að kvarta) Knús Ingibjörg og co.

    By Anonymous Anonymous, at 7:10 PM  

  • Hæ og hó. Þið eruð að verða hættuleg þarna úti, þið hugsið í bjórum og aftur í bjórum, eruð þið bara farin að verða svona bekkjarlið í Köben (bekkirnir vinsælir meðal sullandi dana,grænlendinga og eflaust fáeinra islendinga líka). Ég fór nú á djammið í gær og skvetti ærlega úr klaufunum(brjóstagjafarstandið búið), byrjaði kvöldið með hljómsveitaræfingu :) (fyndið), fór svo í stelpupartý hjá Völu, þaðan var farið á Rex,Næsta Bar,Ölstofuna og endað á Kaffibarnum til kl 6. Óskar fór í golfmót kl 8 og ég þurfti að vera timbr.. með drenginn, frekar erfitt en það bjargaði miklu að hann er svo góður þetta litla skinn. Ég er að passa Bergdísi og Magdalenu núna, Eyjó og Lilja í afmæli á Hellu og mamma og pabbi í I love it feeling fyrir austan. Ég skil ekki ennþá alveg þessa gestabók því commentin virðast lenda hér og þar, afhverju er þetta ekki bara allt á sama fjandans staðnum. Jæja nóg um það, bið að heilsa. Ingibjörg.

    By Anonymous Anonymous, at 3:12 AM  

  • Ingibjorg!! Tu getur commentad hja hvada post sem er hja okkur, en ekki bara hja tvi sem heitir anonymous comment en tad er bara nafnid a postinu!!! Og viltu svo hætta ad blota svona mikid a blogginu okkar...

    By Blogger Ingvi Rafn, at 1:07 PM  

  • HÆ hæ elskurnar. Er að fara í nótt til London svo beint KÍNA næsta dag. Kanski sendi ég kveðju þaðan.
    Mamma lenti inn á spítala í dag, en var flutt aftur á Grund í kvöld. Hér er smá rigning en frábært veður. Hitti Sistu mömmu Elfu hún er farin að vinna á Punk í Laugum.
    Bless bless elskurnar Mamma.

    By Anonymous Anonymous, at 2:53 AM  

  • ...please where can I buy a unicorn?

    By Anonymous Anonymous, at 12:32 AM  

  • patients http://gotuc.net/members/Kitchen-Cabinets/default.aspx http://gotuc.net/members/Slipcovers/default.aspx http://gotuc.net/members/Polar-Heart-Rate-Monitors/default.aspx http://gotuc.net/members/Popcorn-Machines/default.aspx http://gotuc.net/members/Garage-Door-Openers/default.aspx http://gotuc.net/members/Area-Rugs/default.aspx http://gotuc.net/members/Omeprazole/default.aspx http://gotuc.net/members/Vacuum-Cleaners/default.aspx http://gotuc.net/members/Annuity-Calculator/default.aspx

    By Anonymous Anonymous, at 8:53 PM  

Post a Comment

<< Home