Isl - Slo
Sitjum hér og horfum á frændur okkar íslendinga, sem eru að láta slóvena taka sig í nefið. Koma svo Ólafur!! Það er fyndnast að hlusta á danska lýsingu þegar Ísland er að spila. Erfitt að lýsa því í orðum samt. Það er best að Siggi Rabbi frændi hennar Röggu er á línunni hjá íslendingum. Kannski þess vegna sem að gengur svona illa, djók.
Annars erum við komin með gestaherbergi á kolleginu og verðum í því fram á laugardag. Þá flytjum við til Christu og verðum líklega þar út ágúst. Hún er með herbergi sem situr autt og við fáum að hanga í því. Siggi Rabbi var að skora, góður!
Þó að við höfum skilið kisu eftir heima, þurfum við ekki að sakna hennar svo, því að Christa á tvo ketti,
Charlie
og þennan hérna
Svo á camilla, stelpan sem við leigjum hjá fram að jólum, kött sem við þurfum að passa. Hann heitir Jarvis í höfuðið á Jarvis Cocker. Það má segja að við séum hundelt af köttum.(Ragga fattaði þennan, alveg satt)
Þetta er stígvél sem var á stað sem við borðuðum á. Notuð hermannastígvél sýnist mér.
Þetta er Johnny, dúfa sem við þurfum líka að passa. Jarvis og Johnny eru góðir vinir.
Hér erum við að horfa yfir Kristjaníu,
og þetta er stærsti turninn í Kristjaníu. Jee, Ísland komið yfir!
Þetta er á afmælisdaginn minn. Við fórum á ströndina og á Bakken. Það var frekar gaman, þetta var minn 4. bjór held ég :) Og Gudjon Sigurdsson skorar.
Þetta er gott í bili, Ísland er að rústa þessu núna. Bæjó.

3 Comments:
Massa myndir hjá ykkur
By
Anonymous, at 3:25 PM
hvað varstu búinn með marga bjóra þegar þú bloggaðir síðast?
By
Lilja, at 10:18 PM
Ég held ég hafi ekki verið búinn með engan bjór :) Kannski einn pilsner. Það var allavega fyrir hádegi. cheers!
By
Ingvi Rafn, at 9:06 PM
Post a Comment
<< Home