Langur tími, enginn sjór
Jæja elskurnar, sorrý hvað það er langt síðan við höfum skrifað. Gaman að sjá að fólk er í alvöru að fylgjast með okkur. En ekki hvað. Það er bara búið að vera svo mikið að gera, léleg afsökun, sleppum henni. Við (eða Ingvi bara) höfum ekki nennt að blogga. En nú verður breyting á. Hér að neðan kemur update á því sem á daga okkar hefur drifið undanfarna daga, vikur frekar. Í þessum töluðu orðum eru stelpurnar, Ragga og Lára, já Lára er í heimsókn um helgina, að elda kjúkling. Og ég sé um grænmetið, ég sé alltaf um grænmetið. Enda helvíti góður í því. Já, við blótum stundum þó við séum guðhrædd eins og Ingibjörg segir. Allavega, hér er mynd af stelpunum að elda.
Þær taka sig bara asskoti vel út, enda komnar í bjórinn líka.
Við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, eins og að fara í tívolí, það er síðasta helgin núna. Um síðustu helgi var nú ekki fólk af verri endanum hjá okkur. Og svo voru Eyjó og Lilja líka. Það var rosa gaman, við gerðum ýmislegt, ekkert merkilegt samt nema djamm bara.
Þarna eru þau skötuhjúin, já Eyjó er alltaf svona.
Fyrir þau ykkar sem finnst gaman að sjá Röggu borða(hakka) þá læt ég hérna fylgja með eina mynd af henni við þá iðju.(Djöfull er ég háfleygur)
Takið eftir Jarvis sem langar í kjúkling. Hann fór seinna í ruslið og gróf upp kjúklinginn, asninn. Samt ágætis grey.
Um daginn var Rós eitthvað að vesenast í Köben og við hittum hana og kíktum á kaffihús. Þetta var 25.ágúst minnir mig.
Stelpurnar voru samt mest í að tala við aðra, eins og sést, enda höfðum við ekkert að tala um. Jú, djók, það var slúðrað endalaust.
Svo síðustu helgina í águst kom meistarinn sjálfur Amen, og kvonfangið hans, Ásta.
Hér erum við saman í tívolíinu. Systir Ástu (hana) tók myndina. Það var rosa lasershow og flugeldasýning.
Þetta er mynd af stærsta flugeldinum. Ég tek það fram að ég er ekki góður að taka myndir af flugeldum. Tók svona 20 og þessi var best.
Þetta er margumtöluð Christa og Martin. Kominn tími til að setja mynd af þeim á netið. Ekkert meira um það að segja nema þau eru frábær og þoldu að hafa okkur í heila 10 daga. Við erum reyndar ekki fyrirferðamikil, veit það.
Að lokum er svo hérna mynd af snilldar break-urum
sem stilltu sig sérstaklega upp fyrir okkur á Strikinu, "picture time". Þokkalega kúl. Enda fengu þeir 50 aura frá okkur.
Þetta er komið nóg af röfli. Bless........
