Ingvi og Ragga

Wednesday, October 13, 2004

Sveitastrákar í stórborginni

Jæja, þá eru kallarnir farnir frá okkur. Við erum búin að vera í afslöppun síðan þeir fóru og ekki búin að nenna að blogga. Við viðurkennum samt ekki að þeir hafi þreytt okkur svona mikið. Við tókum auðvitað fullt af myndum af þeim kumpánum, enda var þetta söguleg stórborgarferð hjá þeim.

FÖSTUDAGUR

Þeir voru ekki fyrr komnir út úr leigubílnum af flugvellinum, að þeir voru búnir að stífla göngustíga og hjólastíga. Ekki alveg að skilja hjólamenninguna hérna. Þegar búið var að henda töskunum inn, var haldið af stað í bæinn.


Þar var farið í sívala turninn.


Og til Christjaníu. Hér eru þeir að skvetta úr skinnsokknum á flottasta klósettinu í Stínu.


Það var gengið um og einum köldum skolað niður á meðan.


Eftir þetta var farið heim til að hvíla sig fyrir kvöldið. Hér er Reynir að hvíla sig, eins og sést.


Um kvöldið var farið út að borða. Og svo beint á Mojo, sem er blúsbar. Hann er bara helvíti fínn, það var mjög gaman þar og kallarnir alveg að fýla það. Hérna stilltu þeir sér upp á Mojo.


Og önnur uppstilling. Þeir myndast helvíti vel.


Svo var haldið heim á leið, en þó aðeins kíkt á Kakadu fyrst. Ragga var alveg æst í það. Þeir stunduðu þennan stað víst aðeins fyrir tugum ára.

LAUGARDAGUR


Á laugardeginum var farið í aðra heimsálfu. Eða annað land allavega. Hér erum við á leiðinni til Malmö og kallarnir í vatninu bara. Voða rólegir alltaf. Þegar komið var til Malmö var auðvitað spurt til vegar og Reynir sá um það. Þegar hann var búinn að tala við einn heimamann, heldur hann áfram ferðinni en dettur svo kylliflatur á gangstéttina. Þetta var fyndin sjón, Ragga hló manna mest og Reynir ekki ánægður með það. Sem betur fer meiddist hann ekkert. Þetta var svona, you had to be there, fyndið.


Stillt sér upp við ráðhúsið í Malmö. Svo átti að finna litla knæpu til að ná úr sér ferðaþreytunni yfir Eyrasundið. En það var bara ekki hægt því Svíar eru svo helvíti lítið fyrir það.


Þá var bara farið á McDonalds. Fundum reyndar einn bar á leiðinni heim, en það var ekki stoppað lengi í Malmö.


Líkir. Eftir Malmö var farið heim í litla kríu, sem var nánast ekki nein því það var aðeins byrjað að fá sér í tána.


Haldið var á Nýhöfn til að éta. Uppstilling við akkeri þar, tókst ekki betur en svo að þeir hrundu á hausinn, enda sumir orðnir nokkuð svartir.


Nefnum engin nöfn. Á veitingastaðnum fengum við brauð í forrétt, en haldiði ekki að það hafi vantað smjör. Það gengur ekki og Palli vék sér því að næstu konu og segir á sinni góðu íslensku "get ég fengið smér". Konan var ekki að vinna þarna.


Sveitakallar í stórborginni.

SUNNUDAGUR


Sunnudagurinn var tekinn menningarlega, skoðað konungshöllina, hafmeyjuna, og farið í Jónshús.


Sumir þurftu aðeins að rifja upp Nýhöfn, frá því kvöldinu áður.


Svo var hlegið mikið um kvöldið, vísur ortar,


og aðeins fengið sér í tána,


og greinilegt að þriðja Bakkabróðurins var sárt saknað.

MÁNUDAGUR

Fórum í dýragarðinn og aðeins í Fisketorvet til að kíkja í búðir. Það var í fyrsta skiptið sem þeir litu inn í búð alla helgina.

Svo var farið heim að pakka og haldið á flugvöllinn í strætó.

Palli og Reynir prúðir hér
pukrumst við með trúðum
Soldið svartir eins og er
og sneiða fram hjá búðum

Þetta var skemmtileg helgi, takk fyrir komuna

Saturday, October 02, 2004

Lengri tími, ennþá enginn sjór

Vorum að éta, afsakið borða. Fengum okkur pítu með kjúkling. Það virðist vera að alltaf þegar við eldum eða borðum almennt einhvers staðar þá er alltaf kjúklingur. Við kvörtum svo sem ekki, kjúklingur er góður.
Við erum komin með íbúð á Amagerkolleginu, fáum hana á mánudaginn. Það þýðir að við verðum að leigja tvær íbúðir í þrjá mánuði. Ef þið vitið um einhvern sem vantar íbúð á þessu tímabili þá endilega segið þeim að "I´m just a girl, standing in front of a boy, asking him to love her". Dótið okkar er komið í gám og lendir í Köben í næstu viku. Þökk sé okkar yndislegu fjölskyldum sem snúast í kringum okkur, þó við séum hvergi nærri. Maður fær bara samviskubit yfir þessu. Allavega takk allt góða fólk.
Ég(ingvi) er að drukkna í verkefnavinnu þessa dagana. Tvö stór skilaverkefni í næstu viku. En svo í vikunni þar á eftir er snilldar vetrarfríið, sem þýðir 10 daga frí hjá mér. Það verður ljúft. Ég tók þátt í borðtennismóti (bjórtennismót heitir það) í skólanum. Ég gerði mér lítið fyrir og vann mótið. Axel og Gebbi, passið ykkur. Ég er drullugóður :) Mont.
Ég(ragga) er á fullu að leita að vinnu, það gengur ekkert allt of vel. Búinn að sækja um á fullt af stöðum. Það dettur vonandi eitthvað inn. Eins og Ingvi segir, það reddast alltaf allt, gott mottó, ekki klikkað hingað til.
Reynir og Palli (pabbi Röggu og bróðir hans) koma um næstu helgi. Það verður eflaust voða gaman ef maður þekkir þá bakkabræður rétt.
Nóg komið af röfli, ég nenni ekki að setja inn myndir.. Hilsen