Sveitastrákar í stórborginni
Jæja, þá eru kallarnir farnir frá okkur. Við erum búin að vera í afslöppun síðan þeir fóru og ekki búin að nenna að blogga. Við viðurkennum samt ekki að þeir hafi þreytt okkur svona mikið. Við tókum auðvitað fullt af myndum af þeim kumpánum, enda var þetta söguleg stórborgarferð hjá þeim.
FÖSTUDAGUR
Þeir voru ekki fyrr komnir út úr leigubílnum af flugvellinum, að þeir voru búnir að stífla göngustíga og hjólastíga. Ekki alveg að skilja hjólamenninguna hérna. Þegar búið var að henda töskunum inn, var haldið af stað í bæinn.
Þar var farið í sívala turninn.
Og til Christjaníu. Hér eru þeir að skvetta úr skinnsokknum á flottasta klósettinu í Stínu.
Það var gengið um og einum köldum skolað niður á meðan.
Eftir þetta var farið heim til að hvíla sig fyrir kvöldið. Hér er Reynir að hvíla sig, eins og sést.
Um kvöldið var farið út að borða. Og svo beint á Mojo, sem er blúsbar. Hann er bara helvíti fínn, það var mjög gaman þar og kallarnir alveg að fýla það. Hérna stilltu þeir sér upp á Mojo.
Og önnur uppstilling. Þeir myndast helvíti vel.
Svo var haldið heim á leið, en þó aðeins kíkt á Kakadu fyrst. Ragga var alveg æst í það. Þeir stunduðu þennan stað víst aðeins fyrir tugum ára.
LAUGARDAGUR
Á laugardeginum var farið í aðra heimsálfu. Eða annað land allavega. Hér erum við á leiðinni til Malmö og kallarnir í vatninu bara. Voða rólegir alltaf. Þegar komið var til Malmö var auðvitað spurt til vegar og Reynir sá um það. Þegar hann var búinn að tala við einn heimamann, heldur hann áfram ferðinni en dettur svo kylliflatur á gangstéttina. Þetta var fyndin sjón, Ragga hló manna mest og Reynir ekki ánægður með það. Sem betur fer meiddist hann ekkert. Þetta var svona, you had to be there, fyndið.
Stillt sér upp við ráðhúsið í Malmö. Svo átti að finna litla knæpu til að ná úr sér ferðaþreytunni yfir Eyrasundið. En það var bara ekki hægt því Svíar eru svo helvíti lítið fyrir það.
Þá var bara farið á McDonalds. Fundum reyndar einn bar á leiðinni heim, en það var ekki stoppað lengi í Malmö.
Líkir. Eftir Malmö var farið heim í litla kríu, sem var nánast ekki nein því það var aðeins byrjað að fá sér í tána.
Haldið var á Nýhöfn til að éta. Uppstilling við akkeri þar, tókst ekki betur en svo að þeir hrundu á hausinn, enda sumir orðnir nokkuð svartir.
Nefnum engin nöfn. Á veitingastaðnum fengum við brauð í forrétt, en haldiði ekki að það hafi vantað smjör. Það gengur ekki og Palli vék sér því að næstu konu og segir á sinni góðu íslensku "get ég fengið smér". Konan var ekki að vinna þarna.
Sveitakallar í stórborginni.
SUNNUDAGUR
Sunnudagurinn var tekinn menningarlega, skoðað konungshöllina, hafmeyjuna, og farið í Jónshús.
Sumir þurftu aðeins að rifja upp Nýhöfn, frá því kvöldinu áður.
Svo var hlegið mikið um kvöldið, vísur ortar,
og aðeins fengið sér í tána,
og greinilegt að þriðja Bakkabróðurins var sárt saknað.
MÁNUDAGUR
Fórum í dýragarðinn og aðeins í Fisketorvet til að kíkja í búðir. Það var í fyrsta skiptið sem þeir litu inn í búð alla helgina.
Svo var farið heim að pakka og haldið á flugvöllinn í strætó.
Palli og Reynir prúðir hér
pukrumst við með trúðum
Soldið svartir eins og er
og sneiða fram hjá búðum
Þetta var skemmtileg helgi, takk fyrir komuna

3 Comments:
Jei ég er komin með nýtt áhugamál......það er ótrúlega gaman að lesa bloggið ykkar. Bið að heilsa liðinu í baunalandi. Kolla (laugavatns)
By
Anonymous, at 10:43 PM
Hæ hó
Þetta hefur augljóslega verið frábær ferð hjá bræðrunum og eflaust ekki síður skemmtilegt fyrir ykkur að fylgjast með. Allaveganna, frábær ferðasaga og gaman að heyra loksins frá ykkur.
Hafið það gott...
Ps. Ragga, splæsti pabbi þinn í úlpu? Sé það ekki alveg á fyrstu myndinni... hehe
By
lara, at 11:37 PM
Hæ hæ, sé og heyri að það var gaman hjá Bakkabræðrum, hef ekki komið hér inn lengi og varla kveikt á tölvunni í langan tíma, eitthvað svo bussy. Hlakka til að sjá ykkur um jólin. Knús stóra sysssssa skessssa.
By
Anonymous, at 1:04 AM
Post a Comment
<< Home