Afsakið letina
Jæja loksins látum við í okkur heyra, rétt að láta vita að við erum á lífi. Af okkur er allt gott að frétta. Ingvi er bara alltaf á fullu í skólanum, rosa duglegur og ég hef nú verið að gera mest lítið. Ég er samt komin með vinnu í súkkulaðiverksmiðju í einhvern tíma, veit ekki alveg hvað lengi. Þetta er bara fín vinna, er að pakka inn súkkulaðinu það er bara kósí. Það versta er að við meigum borða eins mikið og við viljum af því og það er geggjað gott, svo ég vona að ég verði ekki orðin hnöttótt þegar ég kem heim.
Við erum búin að leigja hina íbúðina okkar út fram að jólum, sem betur fer. hefðum varla getað borgað tvær leigur. Áður en við leigðum hana út keyptum við 4 stóla og eldhúsborð í hjálpræðishernum. Gátum ekki leigt hana alveg tóma og við þurftum hvort eð er að kaupa þetta. Við vorum svo rosalega sparsöm að við vildum ekki panta sendiferðabíl svo við drösluðumst fyrst með stólana, og svo daginn eftir borðið, í lestina og þaðan í íbúðina. Þetta var soldið langt allavega með svona byrgði. Vorum því að drepast úr harðsperrum eftir það. Fólk glotti nú spldið út í annað þegar það sá okkur, vorum hálf bakkabræðraleg. Ingvi setur kannski myndir af þessu.
Allavega við erum á lífi og reynum að updeita hérna á síðunni eins fljótt og við nennum.

1 Comments:
Ótrúlega var notalegt að lesa nýjan pistil frá ykkur í morgun, var orðin svol. leið á hinu, þó sveitastráka sagan sé bráðskemmtileg að vísu.
En semsagt þó við heyrumst á MSNinu og jafnvel í síma þá er notalegt að lesa pistlana ykkar og fylgjast með hreyfingu hjá ykkur.
Við fórum hins vegar á ball(hlöðuball) í Björkinni um helgina (Haffi,Brynja og Íris), vantaði bara ykkur. Einsi og félagar (eins og hinir) spiluðu - geggjað fjör og allir báðu að heilsa ykkur. Nánar síðar - hilsen - Mom.
By
Anonymous, at 10:49 AM
Post a Comment
<< Home