Jóla hvað!!!
Jæja jæja allir þarna úti. Þá er óðum að styttast í að við komum heim aftur í jólafrí. Við erum nú komin með smá fiðring í magan, alltaf svo gott að komast heim. Þangað til eru samt nokkur verkefni og próf hjá Ingva svo hann hefur varla tíma til að hugsa um það, en hjá mér er það bara súkkulaðið. Ég er nú orðin soldið þreytt á því en þetta er í svo stuttan tíma að ég læt mig hafa það. Langar samt bara að fara að byrja í skólanum, veit samt að ég verð örugglega þreytt á því líka strax.
Við erum búin að vera í svoldlu veseni með tölvur síðustu daga. Fartalvan eyðilagðist svo við keyptum nýja dell tölvu, það er bara hægt að gera í gegnum netið hérna. Talvan var á leiðinni til okkar í gegnum eitthvað sendi fyrirtæki, en henni var bara stolið þar. Svo við erum búin að bíða og bíða og Ingvi búin að hringja og rífast pínu. En allavega núna er alveg splúnku ný talva á leiðinn og vonandi verður ekkert vesen núna.
Ég er bara komin í soldið jólaskap, komin vel á veg með jólagjafainnkaupinn og er að fara í julefrokost á morgun með nokkrum stelpum úr vinnunni. Langar að fara að skreyta en það er bara ekkert jólaskraut hérna, nenni ekki og hef ekki efni á að fara að kaupa eitthvað skraut í þessa íbúð, er nú að fara að flytja úr henni um jólin. Ég verð bara að skreyta þá tvofalt bara næstu jól.
Jæja ég ætla að fara að hætta þessu blaðri, hef hvort eð er ekkert að segja.
hafið það gott þangað til næst .

3 Comments:
Gaman að heyra frá ykkur loksins!!!
Við ákváðum að skella okkur á jólaskrautið en létum fartölvuna bíða :)
Hlakka til að sjá ykkur um jólin
Eyjó og co
By
Lilja, at 11:52 PM
Tölva ekki talva...
- Pirri
By
Anonymous, at 9:01 AM
Til hamingju með nýju tölvuna, Dell klikkar auðvitað ekki!! Gaman að heyra í ykkur, hlakka til að fá ykkur heim!!!
By
lara, at 12:25 PM
Post a Comment
<< Home