Ingvi og Ragga

Monday, December 06, 2004

13. dagar í okkur

Sæl öll nær og fjær. Þá er alltaf að styttast í að maður komi heim, tvær vikur í dag. Og ég er bara að verða asskoti spennt að hitta alla. Allt fín að frétta af okkur sosum. Ég er ennþá í súkkulaðinu, er reyndar alveg farinn að telja niður í að hætta þar, 9 vinnudagar eftir. Ingvi er útí skóla núna alltaf að læra rosa duglegur, ég sé frekar lítið af honum þessa dagana. En það er samt bara gott að hann hafi svona mikinn sjálfsaga. Vona að ég verði svona dugleg þegar ég byrja í skólanum.
við komum heim þann 20. des og fer aftur 10. jan svo við verðum á íslandi í góðan tíma. Ég verð reyndar eitthvað að vinna hjá mömmu um jólin en samt ekkert brjálað mikið held ég, allavega ef þið viljið gera ykkur sæt fyrir jólin veriði þá bara í bandi.
Eitt ýkt fyndið, ég var á leiðinni heim úr vinnunni á föstudaginn frekar þreytt og sjúskuð í joggaranum. Og nema hvað, haldiði að mér hafi bara ekki verið boðið á deit í lestinni. Þetta var nú samt alveg ömurlegur gaur frá nígeríu svo ég bara þakkaði pent, og sagði " I don´t think that my boyfriend would like that" en samt gaman.


En allavega bless í bili og hlakka til að sjá ykkur öll um jólin. ble ble Ragga.

1 Comments:

  • Ýkt fyndið sem kom fyrir mig líka. Það var heimilislaus kona í lestinni sem fór að tala við mig. Mjög ó fríð og hún bauð mér heim til sín á deit.
    - Ingvi

    By Blogger Ingvi Rafn, at 7:27 PM  

Post a Comment

<< Home