Sæl og bless allir saman.Bara rétt að láta heyra frá okkur áður en við förum til íslands, bloggum ábygglega ekkert þar. Ingvi búin í prófum og því öllu, og það gekk bara vel allt saman, reyndar er hann ekkert búin að fá út úr neinu en ég hef engar áhyggjur af því.
Núna er síðasti dagurinn í súkkulaðiverksmiðjunni góðu runninn upp og ég get nú ekki sagt annað en að ég sé mjög fegin því og borðaði alveg fullt af súkkulaði í dag svona vegna komandi aðskilnaðar.
Það var mjög fyndið um daginn þá komu Jón Ásgeir og Jóhannes í bónus og fleiri dúddar að skoða nýjustu fjárfestinguna. Allar stelpunar voru ýkt spenntar búnar að heyra að hann væri voða ungur og sætur, fóru kannski að gera sér aðeins of miklar vonir um að þeir væru eitthvað spennandi. Og búnar að heyra að þeir mundu eitthvað spjalla við okkur og sonna. En svo komu þeir og voru ýkt leiðinlegir og þurrkunntulegir og stelpurnar voru svo svekktar. Þetta var samt soldið spaugilegt, einhverjir öskubuskudraumar komnir upp hjá þeim. sem voru langt frá því að rætast.
Jæja ég bara að koma heim eftir þrjá daga og er nú orðin ansi spennt að hitta ykkur öll. Bið að heilsa öllum, tak og hej, tak og hej, tak og hej levepostej

1 Comments:
he he.
kveðja mamma.
By
Anonymous, at 11:57 PM
Post a Comment
<< Home