Ingvi og Ragga

Friday, January 21, 2005

Ekki mjög skemmtilegar Fréttir

Jæja þá er maður nú aldeilis búin að upplifa stóborgarfílinginn í ræmur. Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir í rosa kósí íbúð. Sko við erum búin að vera heima öll kvöld síðan við komum hingað bara að horfa á sjónvarpið og sonna, svo í gær þá ákváðim við að kíkja aðeins út á kaffihús, vorum ca tvo tíma úti. Svo þegar við komum heim þá var bara allt á rúi og stúi og fartalvan, allar leiðslur og taskan undir hana horfin og tveir hringir. Haldiði ekki bara að við höfum verið rænd. Shitt hvað þetta var mikið sjokk maður. Þó að þetta sé nátturlega þvílikt fjárhagslegt tjón, þá er samt einhvernvegin ennþá verra að það eru einhverjir gaurar búnir að vera hérna inni og gramsa í öllu sem maður á. Það gerir mann eitthvað svo reiðan. Við hringdum nátturlega strax í lögguna en hún kom ekki fyrr en í morgun, svona csi lið með rosa töskur og spurningar, svo núna er verið að vinna í málinu og rannsaka. Samt engar líkur á að fá þetta dót til baka. Líka hálf fáranlegt hvað það líður langur tími þar til löggan kemur, ætli talvan sé ekki komin til þýskalands eða eitthvað. Svo var ég (Ragga)geðveikt nojuð að fara að sofa, gat í fyrsta lagi ekkert sofnað svo ef heyrðist eitthvað smá brak þá hrökk ég alveg í kút. En allavega þá getur maður þakkað fyrir að þetta var ekkert verra, við erum allavega heil á húfi bæði og það er nú fyrir öllu, ekki satt.
Núna er Oddur Óskar hjá okkur og við erum bara komin í gúddí fíling aftur, þýðir ekkert að væla þetta, life goes on. Og bara ætlum að skemmta okkur sem best um helgina. Hafið það gott og heyrumst síðar.
Hjödda hugsasði nú soldið til þín, vantaði að þekkja einhvarn í löggunni svo það yrði ger eitthvað í máinu strax.
En allavega bæ bæ og heyrumst. kveðja Ragga og Ingvi.

5 Comments:

  • Þú meinar þá af því við skrifuðum þetta í tölvu og það hlýtur að hafa verið fartölvan. Nei þetta var skrifað í sömu tölvu og þetta sem ég er að skrifa núna. Gamla traktornum mínum sem stendur alltaf fyrir sínu og er svo mikill hlunkur að enginn vill stela honum. Þetta er Pentium 3 Massey Ferguson með skóflu og 256 MB minni.
    Kveðja, Ingvi bóndi

    By Blogger Ingvi Rafn, at 3:31 PM  

  • Hæ hæ, ætlaði bara að kvitta fyrir mig. Ekkert sérstakt að frétta héðan, hef meira að segja næst vonandi ;o)
    bið að heilsa.

    Ingibjörg.

    By Anonymous Anonymous, at 12:33 AM  

  • hva, er ekkert að frétta???
    kv

    By Blogger Lilja, at 12:25 PM  

  • Miðað við mann sem er við tölvuna allan daginn, alla daga, (og stundum á nóttunni) ertu ótrúlega latur að skrifa á síðuna ykkar!
    Hvernig væri að setja bara reglu um að bæta á hana einu sinni í viku, t.d. á miðvikud.(þegar þið eruð ekkert í skólanum!) eða um helgar.
    Kveðja - mamma (alltaf að skipta sér af )

    By Anonymous Anonymous, at 5:21 PM  

  • Sælt veri fólkið!! LAngt síðan maður hefur séð og heyrt af ykkur (nema Röggu, hitti hana í laugunum í sumar). Sést að Danaveldi leggst vel í ykkur og nægur er gestagangurinn, ekki er hægt að segja það sama hér norður á Akureyri =)
    Bestu kveðjur til ykkar, verð í bandi næst þegar ég á leið í Köben (er alltaf á leiðinni aftur).
    Leiðinlegt að heyra með innbrotið, hef lent í því með bílinn minn og fannst það nægilega slæmt fyrir hræðslu-sjálfið!
    Bestu kveðjur!

    Dísa
    (er með síðu á barnalandi, Héðinn Höskuldsson, leyniorðið er akureyri)

    p.s. Sá að þið fóruð aðeins til Malmö, var þar í eina önn í fyrra. Þar er sko nóg af víni flæðandi skal ég segja ykkur.. bara vita hvar á að leita =)

    By Anonymous Anonymous, at 9:30 PM  

Post a Comment

<< Home