Ingvi og Ragga

Friday, January 14, 2005

Tilbaka í Köben

Þá er kominn tími til að láta aðeins vita af sér. Hér að neðan eru nokkrar myndir sem lýsa því hvað hefur á daga okkar drifið síðustu vikur. Þess ber að geta að hér má aðeins sjá dropa í hafið af þeim ótalmörgu svaka skemmtilegu atburðum sem gerðust nálægt okkur.
Við lentum í orgíu þegar við fórum í sakleysi okkar að fá okkur skötu á messu heilags Þorláks.


Afleiðingarnar af því voru svakalegar.


Eins og sést.


Enda orgían ekki uppá marga fiska.


Hér eru Skapti og Skafti í góðu flippi á Boston CelticCross. Það sést ekki en þeir eru báðir blindfullir. Nei grín bara.


Afmæli hjá Magdalenu skvísu sem var tveggja ára.


Hér er Reynir töffari með frænkugellu sinni.


Við kíktum í göngutúr á fróni en mér leist ekkert á þennan skítakulda þarna.


Þegar við komum til Köben tók þetta á móti okkur. Tóm íbúð og hellingur af ruslpósti.


Þannig að við drifum okkur beint í lestina til að skoða húsgögn.


Hittum þennan stork. Hann var barnlaus.

Við fórum í IKEA til að skoða húsgögn. Bara skoða sko. En það var ekki hægt. Við enduðum á að kaupa svefnsófa, kommóðu, lítið borð og tölvuskáp.


Allt draslið utan af þessu fyllti íbúðina.


Þetta er fræga borðið og stólarnir sem við keyptum fyrir jól og löbbuðum hálfan dag til að koma þessu heim. Alveg þess virði, kostaði bara 500 kall allt saman. Og útdraganlegt borð í þokkabót.


Svo er bara að setja saman tæknilegóið. Þvílíkt gaman.


Eftir að hafa snúið nokkrum spýtum vitlaust og neglt nagla með skiptilykli og fleira skrautlegt, komst tölvuuskápurinn upp.


Kommóðan var létt og þung. Það er létt að setja saman en fáránlega þung að bera.


Þetta er svefnsófi með geymsluplássi líka. Kemur sér vel í plássleysinu. Græddum rúmmeter. Rúm meter hahaha.


Við tímdum ekki að kaupa meira þó okkur vanti hillur og fleira. Þá settist ragga niður með kassana og stóra límbandsrúllu og byrjaði að föndra. Þetta er fyrir myndasafnið okkar og dundaði hún í að líma pappír utan á allt.


Ég gerði náttborðið. Er að spá í að sækja um einkaleyfi á þessu. Þetta er svo sniðugt.


Þetta er samt besta uppfinningin. Ragga gerði þetta sófaborð. Lítur vel út..


Og þegar betur er skoðað sést hvernig er í pottinn búið. Það er verst að það er bannað að hella niður, heyrirðu það Ingvi.

Þetta var dropinn í hafið. Ég vona að þið getið lesið þetta fyrir öllum frösunum.
Kveðja Inga og Raggi

3 Comments:

  • Hvenær komið þið í hús og híbýli, eða bo bedre eða hvað þetta heitir í DK.
    Flott pappakassaborðið, en ég hlýt þó að gera fyrirvara um áætlað burðarþol

    kv. ARnór

    By Anonymous Anonymous, at 12:10 PM  

  • Hæ krúttin mín :)
    En hvað nýju húsgögnin eru flott og góðar reddingar í rest:) Það held ég að Vala í Innlit/útlit myndi pissa í sig af hrifningu. Sé það fyrir mér "en hvað þetta er skemmtilegt hjá ykkur", "en skeeeemtilegt"...

    Vildi ég að hefði náð að hitta á ykkur þegar þið voruð á landinu!

    Kveðja,
    Elín Á.

    By Blogger Elín, at 2:41 PM  

  • já ég hugsaði mikið um að hringja í þig eftir að við hittumst í kringlunni en það gafst einhvernvegin engin tími. Verður bara að bíða betri tíma.

    By Blogger Ingvi Rafn, at 2:05 AM  

Post a Comment

<< Home