Ingvi og Ragga

Wednesday, March 09, 2005

Back on popular demand ...

Halló halló. Ég byrja alltaf öll web-log á því að afsaka hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast. Ég ætla ekki að gera það núna. Mér er alveg sama, ég skrifa bara þegar ég nenni og hananú. Það er þá bara þeim mun skemmtilegra þegar ég loksins kem mér til þess að skrifa eitthvað. Það er margt búið að gerast í okkar lífi. Allt saman voða skemmtilegt, ég er svo jákvæður að ég sé bara gott í öllu. Hér kemur þá myndasyrpa af öllu saman. Það er margt annað sem hefur gerst hjá okkur en ef ég hef ekki tekið mynd af því þá man ég ekki eftir því.


Þetta eru verksummerki eftir innbrotið. Tókum myndir af öllu fyrir lögguna og snertum ekki neitt til að hægt væri að taka fingraför. Svo kom danska C.S.I á vettvang. Þeir eru ekki alveg jafn góðir og bandarísku C.S.I. Gaurinn var með svaka tösku, setti hana á gólfið, tók upp málband og mældi. "32 centimetrar". Svo lokaði hann töskunni og gerði ekkert annað. Ekki skrýtið að við höfum ekki séð tölvuna aftur. Ég nota bara gamla vasareikninn minn núna, hann stendur alltaf fyrir sínu.


Nei, það er ekki bara svona mikið drasl hjá okkur! Þjófarnir tóku líka allt leirtau úr skápunum hjá okkur, óhreinkuðu það og skildu það eftir í vaskinum. Tók reyndar ekki mynd af því.


Daginnn eftir innbrotið kom Oddur í heimsókn til að létta okkur lífið.


Fórum á vaxmyndasafnið.


Og saman á klósett. Það kostar inná svona klósett þannig að við fórum öll saman til að spara. Alltaf svo hagsýn.


Hér erum við á Bang & Jensen


sem er gamalt apótek. Alveg satt.


Við tímdum ekki að fara út að borða á hverju kvöldi þannig að við elduðum heima. Ragga eldaði kjúklingaréttinn sinn sem hún er orðin fræg fyrir hérna úti (allavega hjá mér).


Hann var svo góður að Ragga eldaði hann aftur næsta kvöld. Það er ekki slæmt, nákvæmlega sama í matinn tvo daga í röð. Þið sjáið Röggu þarna hægra megin. Hún er að reyna að fela sig en maður sér hana alveg. Hint: hún er þessi í svörtu peysunni.


Eftir megastuð og fjör þessa helgi vildum við vera menningarleg á sunnudeginum og sjá pínulitlu hafmeyjuna. Við vorum alltaf að segja við Odd hvað hún væri lítil svo hann yrði ekki fyrir vonbrigðum að hann varð fyrir vonbrigðum með hvað hún var stór. Hér sést Oddur og hafmeyjan í bakgrunn. Hún er þarna, það var bara komið myrkur og ógeðslegt skítaveður.


Á mánudagkvöldinu fórum við út að borða á Jensens, all you can eat spare ribs. Við fengum okkur öll tvisvar á diskinn bara af því við gátum það. Ég eyddi mestum tíma í seinni diskinn við að skera allt í sundur þannig að það liti út fyrir að ég væri búinn að borða eitthvað.


Svo er haldið út á flugvöll á þriðjudagsmorgni. Ragga vaknaði þegar við komum út á völl enda þreytt eftir góða og langa helgi.


Við erum orðin svo góðhjörtuð að þegar við verslum brauð þá gefum við þeim endana. Þetta lætur manni líða vel í hjartanu, sérstaklega þegar það er kalt úti. Ég mæli með þessu fyrir hvern sem er.


Þetta hús er nálægt þar sem við búum. það nær endalaust langt upp.


Þetta er ólífuskammturinn minn. Ég setti þennan bjór við hliðina til að fólk geri sér grein fyrir stærðinni. Ég klára einn svona dúnk á viku og besta er að þetta kostar bara 18 krónur í Bilka. Hvem'ka, Bilka. Ég er reyndar að fá ógeð á ólífum núna.


Þetta rakst ég á í einhverjum sölubás í Stínu (Christaniu) minnir mig. Þetta er tónlistarafbrigði skylt reggí sem kallast ragga.


Rós kom í heimsókn einhvern föstudag og nokkrir bjórar sötraðir af því tilefni. mikið var slúðrað það kvöld. Ojj


Svo fórum við á Þorrablót íslendinga í Köben. Fórum bara á ballið samt. Hér erum við að fara út úr húsi. Takið eftir tannburstunarslettunum á speglinum. (Ég held ég hafi fundið upp nýtt orð)


Á móti sól voru að spila og svaka fjör. Ómar Berg átti svæðið enda rótarinn hjá hljómsveitinni. Hér er hann að halda æstum aðdáendum í burtu.


Svo fórum við á kynningarkvöld á kolleginu fyrir nýinnflutta. (annað nýtt orð) Kvöldið byrjaði á að vera leiðinlegasta og neyðarlegasta kvöld sem ég hef upplifað en það lagaðist með kvöldinu og á endanum talaði ég reiprennandi dönsku, sænsku og swahili. Þetta er nýi sænski vinur minn sem ég man ekki hvað heitir. Olsen Olsen eða eitthvað þannig.


Og nýja besta vinkona Röggu, heitir Ramor og er kærasta gaursins. Annað höfum við ekki talað við þau síðan þarna, en ágætis krakkar samt.

Ingvi hefur talað.
Kveðja frá okkur báðum.