Ingvi og Ragga

Monday, June 27, 2005

Allt að gerast

Halló allir,

Nú er margt um að vera í okkar hversdagslífi. Ég(Ingvi auðvitað) er búinn að vera að pakka á fullu í dag og síðustu daga á meðan Ragga er að læra fyrir lokaprófið og pakkar líka inn á milli. Við flytjum út annað kvöld og Jón Auðunn vinur okkar kemur með bíl og hjálpar okkur að flytja allt draslið niður á Istedgade. Ég fór ásamt félögunum uppí Roskilde til að tjalda og svo mætum við aftur hressir á miðvikudaginn. Mikið rétt, ég er að fara á Hróarskeldu. Það verður rosalegt fjör á meðan Ragga kýs frekar að spóka sig í sólinni í rólegheitum enda loksins komin í langþráð frí.


Annars hefur ýmislegt gerst síðustu daga og vikur og hér verður stiklað á stóru hvað það hefur verið. Mamma og pabbi komu í heimsókn til okkar um miðjan maí og voru í nokkra daga. Það var mjög fínt og fengu þau gott veður og gátu skoðað ýmislegt.


Þar sem pabbi var slæmur í löppinni, gátum við ekki labbað mikið en hann hertók
hjólið hennar Röggu og hjólaði um allt hverfið hérna og skoðaði allt.


Ekki skrýtið að hann var slæmur í löppinni, það kom í ljós að hann var með æxli sem er nú búið að fjarlægja og hann spreytir sig á hækjum núna og er að ná sér.








Við röltum þetta týpíska, fórum í Tívolí, á Strikið, Nýhöfn, Fields og fleira.



Hér er ánamaðkur sem ég sá einn daginn þegar ég var í skólanum og var að rölta að fá mér að borða. Takið eftir að það er lítil padda þarna sem er að éta ánamaðkinn. Ég bjargaði ánamaðkinum frá pöddunni. Ég tók það allt uppá vídjó ef einhver vill sjá nákvæmlega hvernig þetta gerðist allt saman, þetta var alveg rosalegt.


við félagarnir úr DTU fórum saman út að borða þegar við klárurðum önnina. Þetta fólk var að skoða matseðilinn fyrir utan staðinn þar sem við borðuðum. Ágætis fólk alveg.


Seinna um kvöldið fórum við á tónleika í tívolíinu með hljómsveitinni Saybia. Þeir voru nokkuð góðir og alveg miklu betri en ég bjóst við. Ekkert skrýtið þar sem ég bjóst við að Saybia væri kona sem syngi danskt píkupopp. Svona þessi danska Britney Spears. Saybia er í raun nokkrir gaurar sem spila tónlist ekki ósvipaða Muse, Coldplay, Travis og Radiohead blandað saman.


Þegar hér er komið við sögu eru Eyjó og Lilja mætt til Köben ásamt skvísunum Bergdísi og Magdalenu. Þetta er tekið á 17.júní, sem var 18.júní að þessu sinni. Takið eftir hvað Eyjó er með flott bak.


Þar sem sumarið er svo sannarlega komið hér í Danmörku þá urðum við auðvitað að skella okkur á ströndina. Helgi liggur þarna í lendaskýlunni, vel smurður af olíu. Jón Auðunn er þarna með rauðu handleggina.


Eygló og Reynir kíktu við á leið heim úr kórferðalagi í Noregi. Við fórum út að borða alveg ágætismat. Reyndar var pizzan mín örlítið þurr og sömuleiðis sverðfisurinn hennar Eyglóar.









Hér eru skvísurnar á leiðinni heim eftir matinn.


En við kallarnir fengum að kíkja aðeins á pöbbinn. Við fórum á Mojo sem er blúsbar þar sem er alltaf spiluð lifandi tónlist. Að þessu sinni vora það The Healers sem slógu í gegn.


Við fórum út að borða á afmælinu hennar Röggu, 25.júní, kíktum svo í Tívólí og Ragga fékk allt sem hún vildi. Reyndar þá þurfti hún að borga fyrir allt en það er önnur saga.


Mættir á Roskilde, Bjarki hermaður og Jón Auðunn að spekúlera í tjaldinu. Djö.. verður gaman og veðurspáin er sól sól og sól og smá rigning








Hér kemur svo bumbumyndin sem allir hafa beðið eftir og suðað um að fá. Þarna er Ragga komin 22 vikur + 3 dagar. Það eru 22*5 + 3 = 113 dagar ef maður telur bara virka daga annars eru það 157 dagar.












Þó að það hafi enginn beðið um þessa bumbumynd þá læt ég hana flakka með og verð að segja að ég er frekar móðgaður að enginn hafi beðið um hana.


Þetta er komið gott í bili. Næsta blogg verður þegar við komum aftur til Köben því ég verð tölvulaus í allt sumar. Hvernig fer ég að því að vera tölvulaus, ekki spyrja. Bless í bili. Þið eruð frábær.

Kveðja, Ingvi, Ragga og bumban