Ingvi og Ragga

Friday, September 03, 2004

Fyrstu kvöldmáltíðirnar

Jæja við erum loksins komin með fastan samastað. Erum flutt á Istedgade. Fluttum reyndar á þriðjudaginn en það er búið að vera nóg að gera við að flytja inn og fara í skóla og sækja um vinnur og horfa á sjónvarp og fleira. Vöknuðum í morgun við skrúðgöngu sem fór hérna niður götuna, geðveikt gaman. En það var fínt að vakna því það er rosalega gott veður, heiðskýrt og fullt af sól. Það er eins gott því það er nóg um að vera í dag. Það er götufest í hliðargötu hérna rétt hjá okkur sem byrjar klukkan 3. Þar verða götumarkaðir og gaman bara. Svo er sommerfest í skólanum hjá mér(Ingva) sem byrjar klukkan 3. Þið megið giska á hvað er mest gert þar. Ég dirfist ekki að skrifa það því þá heldur fólk kannski að það sé það eina sem við hugsum um hérna í Köben. Höfum ekki meira að segja nema bara, hér fyrir neðan eru myndir af íbúðinni og okkur að elda hérna í íbúðinni. Við erum sko búin að elda öll kvöld nema eitt hérna í íbúðinni. Við höfðum okkur með á myndunum til að gera þær skemmtilegri enjoy.









Þetta er á þriðjudaginn, fyrsta kvöldið hérna. Við ætluðum að sjóða ýsu, en þar sem við fundum ekki ýsu, þá elduðum við bara þorsk. Hann var mjög góður.


Á miðvikudaginn var það svo fajitas, en þar sem það var ekki til fajitas þá keyptum við lembas-brauð af einhverjum indverja hérna á horninu. Það var mjög gott.


Allt tilbúið.

Mínútu síðar.

Yfir & út

11 Comments:

  • Hej hej....
    Til hamingju með íbúðina, hún lítur glæsilega út! Ég er spennt að koma í heimsókn..;)
    Gaman að fylgjast svona með ykkur, gott að vita að Ragga hakkar jafn hratt sem fyrr...hahaha
    Heyrumst, Lára Bö

    By Anonymous Anonymous, at 4:15 PM  

  • verði ykkur að góðu...........

    By Blogger Lilja, at 5:31 PM  

  • Ég pant fá rúmið á morgun, Ragga tekur sófan!!
    Virðist vera bara helvíti fín íbúð...er eitthvað að loftinu í henni?

    Eyjó

    By Blogger Lilja, at 12:27 AM  

  • Ég pant fá rúmið á morgun, Ragga tekur sófan!!
    Virðist vera bara helvíti fín íbúð...er eitthvað að loftinu í henni?

    Eyjó

    By Blogger Lilja, at 12:28 AM  

  • sófann!!

    By Blogger Lilja, at 12:29 AM  

  • Hæ myndarlegu skötuhjú. Það er ansi erfitt að fá Ísu þarna úti, ég endaði oftast í þorskinum þegar ég var að myndast við fiskréttina :) annars heitir Ísa "Kuller" á dönsku og fæst líklegast bara í spes fiskbúðum (það étur enginn þessa hræ ætu nema við íslandingar og það með góðri lyst). Þetta með að HAKKA í sig matinn með mikilli græðgi er greynilega ættgengt því ég kannast alveg við slíkt hið sama, maður fer í einhvern trans og heyrir hvorki né sér í þessar fáeinu mínótur sem eitthvað er á disknum en svo er hann skyndilega tómur. Bið að heilsa Eyjó og Lilju. Já og það eru loks komnar nokkrar nýjar myndir hjá Reyni jr. Ciao Ingibjörg.

    By Anonymous Anonymous, at 2:40 PM  

  • Vá en fín íbúð! og glæsilegar myndatökur. Gangi ykkur vel fiskibollurnar ykkar:-)

    By Blogger mannfredo, at 3:34 PM  

  • Var að reyna að pína pabba til að skrifa nokkur orð, hann er staddur hérna, en ekki nokkur leið að fá hann til þess í bili. Hann biður að heilsa og er sem sagt búinn að skoða íbúðina sem hann og Palli ætla að sofa í.
    Ingibjörg og pabbi

    By Anonymous Anonymous, at 6:48 PM  

  • Hva... á ekkert að up-deita, haldið nú áfram að koma með sniðugar sögur af sjálfum ykkur, þið eruð svo sniðugar týpur, það hlýtur eitthvað skondið að gerast á hverjum degi. Nú ef ekki þá er alltaf hægt að rækta skáldið í sér og krydda litlausa tilveruna :) Hilsen Big sys

    By Anonymous Anonymous, at 4:47 PM  

  • Sammála fyrri ræðumanni
    Jólfur

    By Anonymous Anonymous, at 12:38 AM  

  • Ég er alveg sammála þarsíðasta ræðumanni, maður hefði nú haldið að það væri fréttnæmt að ég væri að koma í heimsókn..... ;( Það er greinilegt að ég þarf að hertaka tölvuna ykkar um helgina og hlaða inn myndum og skemmtiefni!! Anyways, hlakka til að sjá ykkur í kvöld....(þið hafið örfáa tíma enn til að klára að skúra, skrúbba og bóna...)
    Sjáumst, Lára klára, ; )

    By Anonymous Anonymous, at 12:06 PM  

Post a Comment

<< Home